Árgangur 79
03.03.2007 19:18:59 / kristin

Erum flutt....LOKSINS!!!

Kæru árgangsfélagar og aðrir aðdáendur!!

 

Erum loksins búin að flytja síðuna yfir á bloggar.is til hans Baldurs..

Miklu flottara og skemmtilegra kerfi...verum nú dugleg að halda síðunni gangandi!!

Sjáumst á 1979.bloggar.is

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 14:16:47 / kristin

Fleiri fleiri börn...

Já hún Matta eignaðist stúlku núna 14.febrúar síðastliðinn og gekk það ekki áfallalaust..getið lesið fréttina hér ef þið hafið ekki lesið hana. Elsku Matta og fjölskylda innilega til hamingju með nýjasta meðliminn :) Fjórða barn...geri aðrir betur sko!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 10:48:35 / kristin

Og börnin streyma eins og á færibandi......

Eyrún eignaðist litla stúlku í gær 5.febrúar...veit ekki nákvæmlega málin á henni.

Innilega til hamingju Eyrún mín :)

Kv Kristín.

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 22:08:43 / kristin

Nýtt barn í hópinn...

Heyrði út undan mér að Bjarki hefði verið að eignast litla stelpu, innilega til hamingju með það Bjarki og frú.

Svo var Jóhanna að skíra drenginn sinn og heitir hann Grétar Smári...til hamingju með það.

Vil nýta tækifærið og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og gleðilegt nýtt ár.

Bestu kveðjur...

Kristín.

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 18:00:02 / óli

...it's beginning to look alot like christmas

Kominn tími á eina færslu. Hef lítið getað skrifað þar sem gaurinn sem ég er að stela neti frá... ákvað að loka á netið hjá sér... bastarðurinn. En nú hef ég fundið annað net. Lofa samt að fá mitt eigið eftir jól og stela ei meir ;) Þá styttist í jól. Hitinn fer minnkandi. ca 16 stig eins og er... flakkar þetta frá 12-17... og það getur orðið ansi kalt í þessum raka. Samt ekki ;) Það er búið að skreyta allar götur með jólaljósum, búðir farnar að spila jólalögin, fólk blístrandi og voða happy. Lúmskt væri ég samt til í að fá smá snjó hérna. Bara uppá flippið. Sá í einni bókabúð um daginn traditional styttu af manni sem var að kúka. Með buxurnar á hælunum og á jörðinni var massívur kúkur... og þetta er jólahefð hérna! hahaha ég hló... tók pásu... og hló svo aftur meira. Ruglað lið. En þetta á víst að vera eitthvað gott... hamingja og gleði og blabla bla. Hvernig er það. Er ekki eitthvað massafjör fyrir vestan yfir hátíðirnar? Hvernig spyr ég... alltaf fjör þarna. :) Stefnan er allavega tekin þangað yfir jólin. jæja... i see u when i see u Later óli pééé

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 22:41:17 / kristin

Það munar ekki um hvað árgangurinn er að fjölga sér....

Jóhanna eignaðist lítinn prins í gær 23.október kl 20.03 drengurinn er sagður hinn myndarlegasti  og var 13 merkur og 49 cm. Elsku Jóhanna og Sammi innilega til hamingju með frumburðinn :)

Svo er hún Eyrún komin á stað líka ásamt Hildi Sigurðar. Svo var ég að frétta í dag að hún Matta á von á fjórða barninu sínu í febrúar og mun það verða stelpa ef sónarinn lýgur ekki. Gerði aðrir betur segi ég nú bara!!

Er ég að gleyma einhverjum...eru einhverjir fleiri að fjölga sér??

Kannski Óli sé búinn að barna eina til tvær senjorítur?? ;)


Þetta var slúður dagsins í boði Kristínar.

» 8 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 10:20:05 / óli

KABOOM

Mér finnst vanta á Íslandi svona... þrumur og eldingar.  Það kom smá syrpa hérna í gærkveldi með tilheyrandi látum og ljósa"show"-i.  Magnað alveg hreint.  I love it....
Þaaaaað stoppaði mig samt ekki við að detta í það ;) hehehe

Þaaaaaað held ég.....


 

» 8 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 18:46:18 / óli

...aftur.

hahaha jááájá.  Hressandi!  Fór á ströndina í dag.  Það var gott.  Í dag var verið að taka myndir af einhverri klámmyndastjörnu í mjög efnislitlum fötum.  Mér fannst það hressandi.  Ég fór og fékk eiginhandaráritun á bringuna... svo mjakaði hún sólarolíu á mig... hmmm... eða var það í draumnum?  Já, það var bara verið að taka myndir... ég talaði ekkert við hana.  Fékk mér aftur bjór... á ströndinni.  Alveg heila 2. 
Er að spá í að kíkja á lífið í kvöld.  Einhver geim?

Er fólk hætt að djamma þarna?  Allir orðnir foreldrar?  Er kominn listi yfir þá sem eru ekki orðnir foreldrar?  hehehe

Hasta luego!

» 6 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 18:58:49 / óli

...á spán'ergott'aðdjamm'ogdjúsa Diskótekunum á HEY

Jæja!  Ákvað að henda inn svona eins og einni færslu... rétt áður en þetta blogg hættir.  Þetta er svona typical, "hvað er óli pééé að bralla", færsla.
Aaaaaallavega.... ég er á spáni.  Á Spáni talar fólk útlensku, ekki ég.  Heppinn!  Er í Barþelónuborg og er það ein skemmtilegasta borg sem ég hef komið til.  Ekki sakar heldur að hér er enn heitt og gott... miðað við t.d Ísland... þar sem ég sá að meginþorri fólks þurfti að skafa í morgun hahahahahahhaaha ahhhh snilld.  Ég fór t.d á ströndina í morgun. Ég fékk mér bjór á ströndinni.  Eruði farin að hata mig?  Hmmm þeir sem svara nei, ekki örvænta, það kemur.  Hér kostar bjór á bar ca 2-3 evrur og mojito 5 evrur.  Það er bara ömurlegt að búa hérna. ;)
Ég er s.s að fara í nám hérna úti... sem tekur... ef allt gengur vel... ca 3 ár (4 ef ég tek master).  Þannig að á gamals aldri... og við erum jú orðin ansi gömul... þá ákveð ég loks að fara í skóla.  Djöfull erum við orðin gömul maður!  Ég var bara að pæla í þessu núna.  úfff.
En til að gera langa sögu rosalega stutta...þá verð ég orðinn útlenskubullandialcohólisti þegar ég/ef ég kem aftur heim.

Adeo!

ps.  Ekki er pláss fyrir gesti í íbúðinni... so don't even try it! *flissar eins og lítil skólastelpa*


 

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 17:20:56 / kristin

Til hamingju...

Þá er Sif búin að eignast aðra glæsilega stúlku, elsku Sif innilega til hamingju :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 18:24:28 / eyrune

Myndirnar okkar

Hvað hefur orðið af öllum myndunum okkar?

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 23:47:57 / halldorah

Allt dautt??

Jahérna hér...ég mund enn notenda nafnið og lykilorðið og ætla því að rita nokkur orð. Bara svona rétt smá því Kristín er alltaf svo dugleg að skrifa (hefur bara greinilega ekkert annað að gera...annað en við hin sko8)) hahahhaha.

Ekkert að frétta. Bara að hafa það ROSALEGA gott í sumarfríinu já þessar kennaradruslur geta dúllað sér í góðu sumarfríi.

Annað er það að frétta að gellan er að fara að gifta sig. Jájá þetta tókst Dóru djók sko...bara að fara að gifta sig!! Það eru heilir 5 dagar í þetta og ég bara bíð 8|

Reynið svo að vera dugleg að setja eitthvað hér inn.
Kveðja úr borginni
Halldóra


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 22:42:25 / kristin

Hmmmm...

Hvað er eiginlega að gerast með þessa síðu??

Ekkert að frétta af ykkur árgangur??

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 22:42:04 / kristin

Búið að bætast við í barnahópinn!!

Þá er Þórunn búin að koma barninu í heiminn og fæddist lítill prins í gær 06.06.06.

Þórunn er með síðu hér til hliðar undir bumbubúi Þórunnar, þar getiði séð myndir af sæta prinsinum.

Innilega til hamingju með prinsinn Þórunn mín :)

Alltaf gaman að fá fleiri í barnahópinn!

Einhverjir fleiri bumbubúar?? Einn laumufarþegi hjá Jóhönnu allavega ;)

Bestu kveðjur til ykkar allra!

Kristín.

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 15:14:11 / thegadór

thegadór fluttur!

thegadór er fluttur til Baldurs sem gerði bloggar.is

Sem sagt ég er <a href="http://thegador.bloggar.is">hér</a>

ef þetta tekst ekki þá er urlið þarna samt!

Sjálfur ætla ég að setja tengil þangað hér til hliðar.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6